fasteign.is kynnir:
OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 17. APRÍL KL 17.15 - 17.45
LINDARGATA 28 - GLÆSILEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI.
ÍBÚÐIN ER Í FERÐAMANNAÚTLEIGU Á BOOKING.COM
Sjá slóð hér að neðan:
https://www.booking.com/hotel/is/luxurious-in-the-heart-of-downtown.html?lang=xu
Um er að ræða nýlega brúttó 84,3 fm íbúð á 1. hæð í vesturenda með suðurlóð út frá stofu.
Nánari lýsing.
Sérinngangur.
Forstofa með flísum á gólfi.
Hol, gangur með skápum og parketi.
Stórt baðherbergi, flísalagt, sturta og innrétting ásamt handklæðaofni og glugga.
Tvö góð herbergi með parketi og skápum.
Eldhús og stofa í einu opnu rými með parketi og hurð út í garðinn þar sem er sérafnotaréttur til suðurs.
Eldhúsið er með ljósri viðarinnréttingu, parket, uppþvottavél fylgir.
8,3 fm sérgeymsla í kjallara ásamt saml. þvottahúsi.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur B Blöndal, löggiltur fasteignasali hjá fasteign.is olafur@fasteign.is s. 6-900-811