Eignaleigan.is | Suðurlandsbraut 18 | 108 Reykjavík | s: 5-900-800 | eignaleigan [hjá] eignaleigan.is

Fasteign.is


Fasteign.is fasteignasala var stofnuð í júlímánuði árið 2000. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 5 framúrskarandi starfsmenn með mikla starfsreynslu og eru þar af tveir löggiltir fasteignasalar.

Fasteign.is er staðsett í glæsilegum húsakynnum í hjarta borgarinnar, nánar tiltekið í hinu nýja fjármála- og viðskiptahverfi við Borgartún.
Starfsfólk fasteign.is býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á sviði fasteignaviðskipta og er starfsaldur helstu lykilmanna fyrirtækisins um það bil 18 ár á þessu sviði.

Starfssvið fasteign.is er:

*Sala fasteigna: Íbúðarhúsnæðis, atvinnhúsnæðis, sumarhúsa, fyrirtækja og félaga.

*Verðmöt á íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og fyrirtækjum.

*Gerð leigusamninga vegna atvinnu og íbúðarhúsnæðis.

* Aðstoð við skjalafrágang vegna fasteignatengdra hlutakaupa og erfðamála.

* Ýmiss skjalagerð, ráðgjöf og leiðbeiningar v/fasteignatengdra fjárskuldbindinga.
* Aðstoð við gerð kauptilboða, kaupsamninga og afsala vegna viðskipta sem komast á utan fasteignasölunnar fasteign.is


Við hvetjum þig viðskiptavinur góður að leita eftir upplýsingum um fasteignir og fasteignaviðskipti hjá okkur.

Fasteign.is er til húsa að Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík.

Sími: 5-900-800. - Fax: 5-900-809
heimasíða: www.fasteign.is. eða vefpóstur: fasteign@fasteign.is

Fasteignasalan fasteign.is ehf - Kt. 640300-3880. Eigandi og ábyrgðarmaður er Ólafur Björn Blöndal lögg.fasteigna-fyrirtækja- og skipasali.
Opnunartími: Mán.-föstudaga. Kl. 9-17.

Utan opnunartíma er hægt er að ná í sölumenn okkar í gsm.síma sem fram koma á heimasíðu okkar.


Keyrir á WebEd Pro frá hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn